Haukar sigruðu nýliða Njarðvíkur 3-2 í fyrsta leik sumarsins á Ásvöllum í dag. Haukar byrjuðu leikinn vel og skoruðu strax í upphafi leiks og var þar að verki fyrirliðinn Darri Johansen. Njarðvíkingar jöfnuðu þó leikinn skömmu seinna og náðu svo forystu um miðjan hálfleikinn. Staðan í hálfleik 1-2 gestunum í vil. Okkar menn komu ákveðnari til leiks í seinni hálfleik og um miðjan hálfleikinn náðu þeir að jafna leikinn með góðu marki frá Sævari Eyjólfssyni fyrrum leikmanni Njarðvíkur. Eftir þetta gerðu Haukar harða atlögu að marki gestanna og rétt fyrir leikslok náði Andri Sveinsson að skora sigurmarkið í leiknum en Andri hafði skömmu áður komið inná sem varamaður.
Leikurinn sem slíkur var ekki mikið fyrir augað þrátt fyrir fimm mörk og var hálfgerður vorbragur á mönnum. Engu síður var þetta góður vinnusigur og mikilvægt fyrir liðið að byrja vel í mótinu. Greinilegt er þó að miklu meira býr í liðinu og má alveg búast við okkar mönnum í toppbaráttunni í sumar. Næst er svo útileikur gegn Víkingi R. á föstudaginn kl. 20:00 og að sjálfsögðu mæta allir Haukamenn og styðja við liðið í þeim leik sem verður án efa erfiður.
Byrjunarliðið í dag (4-4-2): Jörundur-Elmar, Veigur, Darri, Edilon- Gunnar Sveins, Goran, Guðmundur M.,Birgir Rafn-Sævar, Magnús Ó.